• Decrease font size
  • Default font           size
  • Increase font size
Náms- og starfsráðgjafi
þriðjudagur, 31 ágúst 2010 22:46

 

Náms- og starfsráðgjafi í Álftamýrarskóla er Fanný Gunnarsdóttir

Sími: 5708100 / 5708159 - Fax: 5708155

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist.

Aðsetur; skrifstofa náms- og starfsráðgjafa er á vesturgangi „græna ganginum“.

Tímapantanir; það er alltaf hægt að senda tölvupóst, hringja eða koma í skólann – ég gæti reyndar verið að kenna eða á fundi, en þá er bara að reyna aftur eða koma til mín skilaboðum. Nemendur og foreldrar eru alltaf hjartanlega velkomnir!

 

Helstu verkefni náms- og starfsráðgjafa:

  • Standa vörð um velferð þína.
  • Styðja þig og fjölskyldu þína við að finna lausn ýmissa vandamála sem upp geta komið.
  • Vera málsvari þinn og trúnaðarmaður.
  • Aðstoðar þig og liðsinna  í málum er snerta t.d. nám, skólavist, framhaldsnám og starfsval.
  • Stuðla að því að þér og öllum nemendum skólans líði sem best.
  • Að þú náir sem bestum árangri í námi.
  • Vinna að því að auka félagsþroska og samstarfshæfni þína og allra  nemenda skólans.
  • Vinna að lífsleikni- og forvarnarmálum í skólanum.
  • Aðstoðar nýja nemendur í skólanum.
  • Undirbúa nemendur undir skólaskipti og kynnir framhaldsskóla og atvinnulíf.
  • Sitja  ýmsa fundi innan og utan skólans sem snerta nemendur og fjölskyldur þeirra.
  • Sækja ráðstefnur og fundi sem tengjast starfinu.
 
Náms- og starfsráðgjafi gefur upplýsingar um……
  • námstækni og skipulag       
  • samskipti við vini, félaga og fjölskyldu
  • lífið og tilveruna
  • félagsstörf
  • stuðning innan og utan skólans    
  • .. og margt fleira

 

Við í Álftamýrarskóla viljum að nemendur;

  • þekki sjálfa sig – sínar sterku og veiku hliðar
  • berir virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
  • setji sér raunhæf markmið  og standir við þau
  • því það skilar árangri
  • kunni að velja og hafa - viti hvenær á að segja nei!
  • viti að það er alltaf hægt að leita aðstoðar –
  • það ber vott um skynsemi þína

 

 

Þú getur rætt við náms- og starfsráðgjafa um ýmis persónuleg mál í trúnaði!*

Þú veist að námsráðgjafinn er í skólanum fyrir þig.

Vertu því dugleg(ur) að leita til mín – það gæti skipt þig máli.

* aðeins með þínu samþykki fá aðrir að vita um hvað okkur fer á milli nema ef lög kveða á um annað.

 

 

Nemendur og foreldrar geta alltaf haft samband við mig alla daga eða sent tölvupóst – Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist.

 

Foreldrar geta haft samband hvort heldur sem er í gegnum síma, með tölvupósti eða pantað viðtal. Það er alltaf gott að fá góðar athugasemdir og ábendingar.  Einnig geta foreldrar haft samband ef þeir vilja að haft sé samband við þá áður en ég legg fyrir nemendur einslega  kannanir, spurningar, eða próf um samskipti eða líðan.