• Decrease font size
  • Default font           size
  • Increase font size
Álftamýrarskóli
sunnudagur, 02 nóvember 2008 14:45

Álftamýrarskóli er heildstæður grunnskóli með 350 nemendur.  Starfsmenn eru 60 talsins.  Skólinn tók til starfa haustið 1964. 

Kennarar og starfsfólk skólans  leggur áherslu á að styrkja sjálfsmynd nemenda sem forsendu fyrir námi og vellíðan. Við viljum hafa sem mesta fjölbreytni í námi. Það gerum við með þemavikum, útikennslu, aðventuhátíð, vetrahátíð, vordögum, gróðursetningu, starfi í grenndarskógi,   haust og vorferðum, lokaverkefni í 10. bekk og svo mætti lengi telja. Mikið íþróttalíf er í skólanum og tengist hluti af því íþróttafélaginu Fram. List og verkgreinar eru og ríkur þáttur í náminu. Við skólann er starfandi öflugt námsver þar sem nemendur fá sveigjanlega þjónustu og kennarar ráðgjöf.

Álftamýrarskóli vill vera skóli í þróun og hefur síðastliðin  ár unnið að tveimur þróunarverkefnum.  Annað er breyttir kennsluhættir og samkennsla. Hitt verkefnið er útikennsla og grenndarskógur. Bæði verkefnin hafa verið spennandi og haft mikil áhrif á starfsemi skólans.  Áfram verður unnið með þessa þætti en jafnfram lögð áhersla á nýbúakennslu.