|
2010 er ár líffræðilegrar fjölbreytni |
|
þriðjudagur, 25 maí 2010 11:30 |
|
Árið 2010 er ár líffræðilegrar fjölbreytni. Sl. föstudag voru þrír nemendur úr 4. - 5. bekk fulltrúar skólans í verkefninu ,,Græna bylgjan" sem Umhverfisráðuneytið, Skógræktarfélag Íslands og Yrkjusjóður standa að í tilefni af því. Þetta voru þær Lilja, Hjördís og Sóley. Þær stóðu sig vel við gróðursetningu í Gufunesi og voru skólanum og sjálfum sér til mikils sóma. Myndir. Sjá nánar um verkefnið: http://greenwave.cbd.int/en/home
|