• Decrease font size
  • Default font           size
  • Increase font size
Litli prinsinn
föstudagur, 25 september 2009 10:05

Litli prinsinn

Myndir úr ferðabók litla prinsins

Slöngumyndir

Prinsa - púðar

Íslandskynning eftir nemendur

Myndir af nemendum

Fundur í Madrid um Litla prinsinn
Kennarar í 6.-7. bekk í Álftamýrarskóla;  Alda Brynja, Guðrún Birna og Kristín Björg, eyddu vetrarfríinu sínu á fundi í Madrid vegna Comeniusar-verkefnisins um Litla prinsinn. Þarna hittust kennarar og skólastjórnendur frá Rúmeníu, Eistlandi, Sikiley,Belgíu, Spáni og Íslandi í nokkra daga og ræddu um framhaldið á samstarfinu næstu mánuði.

Við þökkuðum þeim fyrir allar sendingarnar sem nemendum okkar hafa borist frá þessum vinaskólum okkar; súkkulaði, hnetur, tónlist, fána, myndir og alls kyns minjagripi og auðvitað bækurnar um Litla prinsinn frá hverju landi. Nú á Álftamýrarskóli bókina um Litla prinsinn á 5 erlendum tungumálum og á íslensku.

Kennararnir tóku allir að sér kennslu í spænska skólanum Mirabal og spænsku börnin voru mjög hrifin af að kynnast Grýlu og jólasveinunum og teiknuðu af þeim myndir.  Á Spáni er bara einn jólasveinn, Papa Noel og hann gefur börnunum ekki gott í skóinn á hverri nóttu.

********************************************

Miðvikudaginn 23. september barst nemendum í 6.-7. bekk  ánægjuleg sending frá útlöndum. Þau fengu senda bókina um „Litla prinsinn“ á eistnesku, frá vinum sínum og jafnöldrum í Eistlandi.

Þessi sending er byrjunin á  tveggja ára samstarfi sem nú er að hefjast í Álftamýrarskóla. Nemendur í 6.-7. bekk munu taka þátt í Comeniusar- verkefni Álftamýrarskóla en verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu og er unnið með bókina  Litla Prinsinn, eftir rithöfundinn Antoine de Saint-Exupéry. Skólar í fimm Evrópulöndum hafa hlotið þennan styrk til þess að vinna saman og kynnast betur. Skólarnir eru á Sikiley, Spáni, í Belgíu, Eistlandi, Rúmeníu og svo Álftamýrarskóli á Íslandi. Verkefnisstjóri er Guðrún Birna Eiríksdóttir, kennari.

Nemendur skrifuðu eistnesku vinum sínum bréf í enskutíma og þökkuðu þeim fyrir sendinguna (sjá mynd). Börnin munu fylgjast með lífi og skólagöngu jafnaldra sinna m.a. með því að skiptast á bréfum og tölvupósti og setja inn fréttir á heimasíðuna: www.thelittleprince.be

Skólanum munu berast fleiri bækur á næstu vikum og var ætlunin að senda 5 bækur héðan, eina bók til hvers vinaskóla. Því miður hefur ekki enn tekist að fá keypt eintök af bókinni á íslensku því að hún er uppseld í landinu. Við höldum áfram að leita og þökkum fyrir alla hjálp sem þið getið veitt okkur í leitinni.

Ýmislegt fleira stendur til í þessu samstarfi og verður myndskreyttur veggur í anddyri skólans í vetur af nemendum í 6.-7. bekk undir leiðsögn Margrétar Auðuns, myndmenntarkennara.