• Decrease font size
  • Default font           size
  • Increase font size
Útskrift í 10. bekk. Skoða sem PDF skjal Prenta
miðvikudagur, 09 júní 2010 00:00

utskriftÍ dag útskrifuðust nemendur úr 10. bekk við hátíðlega athöfn. Nemendur fluttu fjölbreytt skemmtiatriði, Birkir Smári spilaði á flygilinn og flutti líka bráðskemmtilega ræðu. Íris, Áslaug og Eydís sungu og spiluðu, Íris og Heiðdís fluttu stutta tölu, Kim, Nicole og Loubna sungu frumsamið lag. Fyrir hönd skólans töluðu Guðni, Auður, Ragna og Fanný. Að lokum buðu foreldrar upp á glæsilegar veitingar. Skólinn þakkar þessum góðu nemendum samfylgdina og óskar þeim alls góðs í framtíðinni. Myndir

 
Skólaslit Skoða sem PDF skjal Prenta

Skólaslit verða sem hér segir:

Þriðjudaginn 8. júní

  • 10. bekkur kl. 17:30

Miðvikudaginn 9. júní:

  • 1. - 3. bekkur kl. 10:00
  • 4. - 5. bekkur kl. 9:30
  • 6. bekkur kl. 9:00
  • 7. bekkur kl. 11:00
  • 8. - 9. bekkur kl. 10:00

 

 
Vorhátíð foreldrafélagsins Skoða sem PDF skjal Prenta
Fréttir
fimmtudagur, 03 júní 2010 16:12

p_doll_circusMinnum á vorhátíðina n.k. föstudag kl. 16:30. Sirkus, uppblásinn rennibraut, húllakennsla, reiðhjólaskoðun kökubasar, fatabasar og lakkrís og margt fleira verður í boði og að sjálfsögðu verða grillaðar pylsur og drykkir í boði félagsins. Mætum öll og höfum það gaman saman. Nánar

 

 
 
Vordagar í skólanum. Skoða sem PDF skjal Prenta
föstudagur, 28 maí 2010 16:32

Nú er prófum að mestu lokið og fjölbreytt starf framundan. Hér má sjá skipulag vordaga í 1. – 9. bekk. Ferðir, fræðsla og skemmtileg verkefni  er markmið okkar þessa daga.  Við viljum minna alla á að koma klædda samkvæmt veðri. Veðurspá. Mánudaginn 31. maí er starfsdagur kennara.

 
2010 er ár líffræðilegrar fjölbreytni Skoða sem PDF skjal Prenta
þriðjudagur, 25 maí 2010 11:30

Gróðursetning með VigdísiÁrið 2010 er ár líffræðilegrar fjölbreytni. Sl. föstudag voru þrír nemendur úr 4. - 5. bekk fulltrúar skólans í verkefninu ,,Græna bylgjan" sem Umhverfisráðuneytið, Skógræktarfélag Íslands og Yrkjusjóður standa að í tilefni af því. Þetta voru þær Lilja, Hjördís og Sóley. Þær stóðu sig vel við gróðursetningu í Gufunesi og voru skólanum og sjálfum sér til mikils sóma. MyndirSjá nánar um verkefnið: http://greenwave.cbd.int/en/home

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>