• Decrease font size
  • Default font           size
  • Increase font size
Desember í skólanum Skoða sem PDF skjal Prenta

JólakötturinnHér eru desemberdagatal Álftamýrarskóla. Það mun breytast en fylgist bara vel með.
Hér eru jólakrækjur

 
Fjölskyldudagurinn 2009 Skoða sem PDF skjal Prenta
Fjölskyldudagurinn 2009Fjölskyldudagurinn gekk alveg einstaklega vel í dag. Mikið fjölmenni og fjölbreytt dagskrá. Hér koma nokkrar myndir.
 
Fjölskyldudagurinn Skoða sem PDF skjal Prenta

jólasveinahufaFjölskyldudagurinn verður í skólanum n.k. laugardag.  Eigum góða stund saman frá kl. 13:00  – 15:00. Stór-fjölskyldan velkomin!!Hressileg dagskrá nemenda hefst stundvíslega kl. 13:00 á sal skólans. Föndur, laufabrauðsgerð og margt fleira. Hvetjum alla til að vera mættir ekki seinna en 12:55 á sal skólans. Dagskrá

 

 
Heimsókn frá Slökkviliðinu Skoða sem PDF skjal Prenta
Fréttir
föstudagur, 20 nóvember 2009 11:38

slökkviliðið kom í heimsóknKrakkarnir í 3. bekk fengu góða heimsókn í morgun.  Þá komu menn frá Slökkviliði Reykjavíkur og fræddu börnin um eldvarnir.  Síðan fengu þau að skoða slökkviliðsbílinn og sjúkrabílinn.  Að lokum fengu þau bækling (með getraun) og höfuðljós að gjöf.  Ánægjan og aðdáunin skein úr hverju andliti og börnin lærðu mikið. Myndir

 
Íslenskuverðlaun menntaráðs Reykjavíkur Skoða sem PDF skjal Prenta

Soffía Sif BaldursdóttirÁ degi íslenskrar tungu voru veitt íslenskuverðlaun menntaráðs Reykjavíkur. Verðlaunin voru veitt í þriðja sinn og er markmið þeirra að auka áhuga grunnskólanema á íslenskri tungu og hvetja þau til framfara í tjáningu og töluðu og rituðu máli. Verndari verðlaunanna er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands. Í ár var einn nemandi úr Álftamýrarskóla í hópi verðlaunahafa, Soffía Sif Baldursdóttir í 6/7 AB. Ástæða fyrir tilnefningunni er að Soffía Sif hefur mjög ríka tilfinningu fyrir íslensku og hefur mjög góð tök bæði á töluðu og rituðu máli. Hún les mikið og hefur óvenjulega mikinn orðaforða og talar litríkara mál en gerist og gengur meðal jafnaldranna. Soffía Sif dvaldi mikið hjá ömmu sinni í uppvextinum og þar var mikið lesið og spjallað og telur hún að ást ömmunnar á tungumálinu hafi haft áhrif á hana. Soffía er þegar farin að semja ljóð og sögur.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>