|
Helgileikur í kirkjunni |
|
|
|
Fréttir
|
|
þriðjudagur, 15 desember 2009 16:40 |
|
Í dag var hinn árlegi helgileikur sýndur í Grensáskirkju. Nemendur í 6. bekk flytja helgileikinni sem tókst mjög vel. Kvartettinn sem spilaði eru nemendur úr 5. bekk, nokkrar stúlkur úr unglingadeild sungu með kórnum. Ánægjulegt var að sjá og heyra hversu margir hæfileikaríkir nemendur eru í hópnum. Umsjónarmenn eru Ásdís Gísladóttir og Kristín Knútsdóttir. Myndir frá hátíðinni og myndband. |
|
Stelpurnar okkar. |
|
|
|
mánudagur, 14 desember 2009 10:59 |
Stelpurnar okkar, þær Hafdís og Karolína léku sinn fyrsta meistarflokksleik með Fram í gær og skoruðu báðar. Hér má sjá fjölda mynda frá leiknum. |
|
Piparkökuhúsakeppnin 2009 |
|
|
|
miðvikudagur, 09 desember 2009 13:51 |
Hin árlega piparkökuhúsakeppni unglingadeildarinnar fór fram í morgun. Nemendur fengu hús, lím og glassúr í skólanum en komu með annað efni að heiman. Ekki skortir hugmyndaflug hjá nemendum eins og sést vel á myndunum sem hér fylgja. Úrslit keppninar verða tilkynnt n.k. miðvikudag. Hér eru myndir úr keppninni |
|
Aðventuhátíðin |
|
|
|
Fréttir
|
|
fimmtudagur, 03 desember 2009 12:20 |
Dásamlegur dagur í skólanum í dag, allir voru úti, fengu heitt kakó, steiktu popp yfir eldi, bjuggu til hljóðfæri, leikir, dans, harmonikuleikur, sögustund og margt fleira. Skoðið myndirnar og fleiri myndir og enn fleiri og þær allra síðustu. Videó Minnum á að við endurtökum leikinn á morgun, forráðamenn eru velkomnir en munið eftir að senda börnin enn betur klædd í skólann á morgun |
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|