• Decrease font size
  • Default font           size
  • Increase font size
Lífshlaupið Skoða sem PDF skjal Prenta

´LífshlaupiðNú er Lífshlaupið að hefjast í 3. sinn. Lífshlaupið er verkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og er hvatning til fólks á öllum aldri um að hreyfa sig. Starfsfólk og nemendur skólans hafa tekið þátt í leiknum frá upphafi. Lífshlaupið verður dagana 3. til 23. febrúar og þann tíma má skrá alla hreyfingu inn á vefinn lifshlaupid.is. Kennarar stofna bekki á síðunni og hjálpa yngri nemendum að skrá inn. Eldri nemendur geta fært inn sína hreyfingu. Lágmarkshreyfing hjá börnum er 60 mín. á dag en hjá fullorðnum 30 mín. á dag. Vonumst við til að sem flestir taki þátt í leiknum með okkur.

 
Þorrablót Skoða sem PDF skjal Prenta
Fréttir
föstudagur, 22 janúar 2010 12:17

Þorramatur í skólanumÍ tilefni dagsins var þorrablót í skólanum í dag. Nemendur voru duglegir að smakka kræsingarnar hvort sem það var hákarl, hrústspungar eða súrhvalur. Hér má sjá nokkrar myndir úr matsalnum

 
Gestir í skólanum Skoða sem PDF skjal Prenta
miðvikudagur, 20 janúar 2010 14:22

ComeniusargestirÍ síðustu viku heimsóttu kennarar frá Svíþjóð og Wales sem voru að vinna að undirbúningi að Comeniusarumsókn sem er samstarfsverkefni 5 skóla og snýst um útikennslu. Grikkland og Tyrkland verða einnig með í verkefninu. Gestum gafst kostur á að fylgjast með nemendum sem sýsluðu úti við, steiktu poppkorn, leystu stærfræðiverkefni, sungu og Kristín Erla og Rut, nemendur úr 5.b spiluðu undir á þverflautur. Myndir

 
Myndlist á Menntasviði Skoða sem PDF skjal Prenta
Fréttir
miðvikudagur, 13 janúar 2010 09:25

Myndlist á MenntasviðiÞann 13. janúar hefst sýning á verkum nemenda Álftamýrarskóla á gangi grunnskólaskrifstofu Menntasviðs að Fríkirkjuvegi 1 Sýningin mun standa til 23. febrúar og er öllum frjálst að fara og skoða sýninguna

 
4. janúar 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta
Fréttir

Um leið og við óskum ykkur öllum gleðilegs árs, viljum við minna á að kennsla hefst samkvæmt stundatöflu á morgun.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>