• Decrease font size
  • Default font           size
  • Increase font size
Öskudagshátíð í skólanum Skoða sem PDF skjal Prenta

Öskudagur í skólanum er sérstaklega ánægjulegur dagur. Nemendur og margir starfsmenn mættu hér í fjölbreyttum búningum. Í stofunum voru mismunandi vinnustöðvar  s.s  andlitsmálun, spil, þrautir, hlutverkaleikur, blikkleikur og margt fleira. Í íþróttahúsinu var keppt í skólahreysti og dans í salnum að lokum voru grillaðar pylsur á pallinum. Myndir frá hátíðinni

 
Vetrarfrí Skoða sem PDF skjal Prenta
Fréttir
þriðjudagur, 16 febrúar 2010 13:49
Fimmtudaginn 18. febrúar og föstudaginn 19. febrúar verður vetrarfrí í skólanum. Við vonum að allir njóti þessara frídaga. Hér er veðurspáinSmile
 
Öskudagur Skoða sem PDF skjal Prenta

Öskudagur er skertur skóladagur. Nemendur í 1. - 7. bekk byrja kl. 8:30 og er til kl. 12:00. Nemendur unglingadeildar mæta kl. 8:10 og eru til 12:00. Sérstök öskudagsdagskrá er fyrir nemendur í 1. - 7. bekk og verður ýmislegt skemmtilegt á boðstólum t.d. andlitsmálun, grímugerð, þrautabraut, þrautakóngur ofl. Nemendur unglingadeildar verða í hefðbundnu námi en kl. 10:35 hefst verkhringur. Þessar vikur eru þau að vinna að ýmsum skemmtilegum verkefnum t.d. eldflaugagerð, stærðfræðimælingum, sjálfsþekkingu ofl. Foreldrar eru velkomnir í heimsókn þennan morgun.  Gaman væri fyrir foreldra nemenda í unglingadeild að koma kl. 10:35 og líta á börnin í verkhring.

 
Fjöltefli Skoða sem PDF skjal Prenta

Fjöltefli

Síðastliðinn þriðjudag (09.02.2010) kom Þröstur Þórhallsson stórmeistari í skák frá Skáksambandi Íslands í heismókn í Álftamýrarskóla. Þröstur tefldi fjöltefli við nemendur í skákvali í unglingadeild. Nemendur börðust hetjulega og þökkum við Þresti fyrir skemmtilega og lærdómsríka heimsókn. Þú getur skoðað myndir frá atburðinum hér
 
Þjóðahátíð Skoða sem PDF skjal Prenta
mánudagur, 08 febrúar 2010 08:28

Þjóðahátíð Álftamýrarskóla verður haldinn sunnudaginn 28. febrúar 2010. Nemendur skólans eru af um 25 þjóðernum og gaman er að kynnast ólíkum menningarheimum og hefðum. Nánar auglýst síðar.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>