• Decrease font size
  • Default font           size
  • Increase font size
Maí og júní í skólanum Skoða sem PDF skjal Prenta
Fréttir
miðvikudagur, 14 apríl 2010 14:17

Í maí og júní verður mjög fjölbreytt og skemmtilegt skólastarf (eins og alltaf), það eru útidagar, ferðadagar, verkefnadagar, prófdagar, og ýmislegt fleira. Hér má sjá nánari dagskrá.

 
Skólabúning já eða nei Skoða sem PDF skjal Prenta

Í tengslum við verkhring í unglingadeildinni þar sem unnið var með búninga og einkennisföt var lögð fyrir nemendur stutt könnun á viðhorfi þeirra til skólafata. Það er mjög áhugavert að sjá niðurstöðurnar, mismunandi afstöðu eftir kyni og aldri. Nemendur komu með hugmyndir að skólafötum og í niðurstöðunum birtist það sem oftast var nefnt. Einnig er gaman að lesa yfir opnu spurningarnar um hvað kæmi til með að breytast hér í Álftamýrarskóla ef allir nemendur væru í sérstökum skólafötum. Hægt er að lesa niðurstöðurnar hér.

 
Einmánaðargleði 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta
miðvikudagur, 24 mars 2010 10:59

Einmánaðargleðin hófst í morgun. Þá voru nemendur við leik og störf á ýmsum stöðvum á skóalalóðinni. Það var grillað, farið í fuglaratleik, blómaleik, skýjaleik, sápukúluverksmiðju, leikina "hvaða dýr er ég", "rándýr og bráð" og gátur og sögur úr Litla prinsinum. Myndir tók Berglind Birgisdóttir 9. GV

 
Páskafrí Skoða sem PDF skjal Prenta
Páskafrí hefst mánudaginn 29. mars. Nemendur mæti samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 7. apríl.
 
Foreldrakaffi á þriðjudaginn Skoða sem PDF skjal Prenta
fimmtudagur, 18 mars 2010 23:00
Þriðjudaginn 23. mars verður næsta foreldrakaffi. Þá munum við bjóðum upp á skemmtiatriði frá nemendum og kaffisopa. Skemmtiatriðin byrja kl. 8:40 en það verður komið kaffi á könnuna kl. 8:10. Eftir samveruna á sal eru foreldrar velkomnir í kennslustofur til barnanna.
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>