Síðastliðið miðvikudagskvöld keppti lið Álftamýraraskóla til úrslita við lið Hagaskóla í spurningakeppni grunnskólanna. Fjórtán skólar hófu keppni í mars síðastliðnum en Hannes Daði Haraldsson og Óskar Kristinn Rúnarsson skipulögðu hana auk þess sem þeir sömdu spurningar og töldu stig í keppni kvöldsins. Ágúst Bogason sem var spyrill í keppninni en hún var í beinni útsendingu á rás 2. Lið Álftamýrarskóla skipa: Kjartan Magnússon, Alexander Berg Garðarsson, Eðvarð Ingi Erlendsson og Arnar Gíslason. Myndir
Ferð í Skautahöllina
Síðasta vetrardag fór SH bekkurinn hjólandi í Skautahöllina. Tilefnið var góð hegðun í skólanum, steinakrukkan orðin full. Það var mikil tilhlökkun í hópnum, aðallega hlökkuðu þau til að fara með kennarann á skauta. Hér eru nokkrar myndir úr ferðinni.
Slökkvistöðin í Hafnarfirði
Fréttir
mánudagur, 26 apríl 2010 10:17
Um daginn kom gamall strætó og sótti 2. og 3. bekk í skólann. Ferðinni var heitið í Hafnarfjörðinn. Pabbi Kára í GO bekknum fór með okkur og fræddi börnin um starf slökkviliðsmannsins á lifandi og skemmtilegan hátt. Við kunnum honum bestu þakkir fyrir. Myndir af GO - myndir af ÁS - myndir af BB
Árshátíð unglingadeildar
föstudagur, 16 apríl 2010 09:27
Árshátíð unglingadeildarinnar fór fram með miklum glæsibrag í gærkvöldi. Nemendur sáu um að skreyta salinn og Hjörtur sá um matinn. Glæsileg skemmtiatriði voru í boði, Birkir spilaði á flygilinn áður en hátíðin var sett, Valrós söng, nemendur úr 10. AA sungu lag til kennaranna við texta eftir Eydísi, starfsmenn Tónabæjar voru með skemmtilegt atriði, kennarar unglingadeildar voru með sitt „show“ og síðast en ekki síst var Skaupið 2010 en leikstjórar þess voru Birkir, Stefán Darri og Daði. Íris og Eydís voru veislustjórar og stóðu sig mjög vel. Nemendur voru til mikillar fyrirmyndar og við starfsfólk skólans erum full af stolti yfir þessum frábæru krökkum. Myndir
Okkar lið í úrslit!
Fréttir
fimmtudagur, 15 apríl 2010 12:12
Miðvikudaginn 28. apríl mun lið Álftamýrarskóla, skipað þeim Arnari Gíslasyni, Eðvarði Inga Erlingssyni og Kjartani Magnússyni etja kappi við Hagaskóla í úrslitum spurningakeppni grunnskóla Reykjavíkur. Keppnin fer fram á Markúsartorgi Útvarpshússins og verður henni jafnframt útvarpað í útvarpi allra landsmanna. Stórviðburður í sögu Álftamýrarskóla.