|
miðvikudagur, 19 maí 2010 09:19 |
|
Nú er búið að afhenda umslögin með peningunum sem nemendur skólans söfnuðu í áheitahlaupi Unicef. Við fengum yngstu og elstu nemendur skólans til að afhenda það sem safnaðist og taka á móti viðurkenningarskjali frá Unicef. Þar er nemendum, foreldrum og kennurum í Álftamýrarskóla þakkað fyrir þátttökuna og mikilvægt framlag til starfseminnar í þágu þurfandi barna um allan heim. Í allt söfnuðust 190.220 krónur sem er heldur betur dágóð upphæð. Nú verður þessi upphæð send þangað sem þörfin er mest en Unicef starfar í 157 löndum víðs vegar um heiminn.
|